Oddný Pedersen (fædd Ólafsdóttir)

60 - Oddny Pedersen

Mynd: Oddný 21 árs.

(1932 - 2014)

Fædd og uppalin á Íslandi

Oddný var sjötti barn hjónanna, Ólafs Kristjánssonar og Oddnýjar Sölvadóttur. Hún var því fædd inn í stóran systkinahóp, en alls urðu systkinin tíu. Oddný átti góða æsku þar sem hún ólst upp á Patreksfirði, litlu sjávarplássi á norðvestur Íslandi, þar sem faðir hennar starfaði við sjómennsku og netagerð á meðan móðir hennar sinnti heimilisstörfum, eins og þá tíðkaðist.

Oddný gekk í skóla á Patreksfirði og fermdist í Patreksfjarðarkirkju, íklædd íslenskum búningi, ætlaður stúlkum á fermingaraldri.

Eftir útskrift úr barna- og unglingaskóla Patreksfjarðar hóf Oddný nám við Húsmæðraskólann á Löngumýri í Skagafirði. Samhliða almennum skyldufögum tók hún einnig fög sem snéru heimilishaldi; matargerð og saumaskap. Oddný hélt síðan áfram með saumaskapinn í höfuðborginni Reykjavík.

Oddný lifði kærleiksríku og hamingjusömu lífi á Íslandi og var ást hennar á föðurlandinu ætíð mikil. Fjölskyldan hélt alltaf nándinni, í gegnum öll árin, og var sérstaklega samband þeirra systkinanna ákaflega gott.

60 - Oddny som barn
Mynd: Ferming Haralds (Halla). Oddný stendur vinstra megin, fyrir miðju, með foreldrum og systkinum

Danmörk 
og stóra ástin

Í maímánuði árið 1958, þá 26 ára, lagði Oddný land undir fót og fór til Danmerkur. Þar var hún í fylgd tveggja vinkvenna sinna og var ætlunin að ferðast um og skoða landið. Sú ferð gekk vonum framar og framlengdu þær dvöl sína og fóru að vinna. Allar fengu þær starf sem saumakonur hjá Herlem & CO í Kaupmannahöfn.

Vinkonurnar þrjár bjuggu á gistihúsi á Frederiksberg, en það var einmitt þar sem Oddný kynntist ástinni sinni og verðandi eiginmanni, Niels Christian, sem hafði flutt árið 1956 frá Vejle til Kaupmannahafnar. Eftir það var ekki aftur snúið og innan nokkurra mánaða voru þau orðin par.

Sumarið leið, sem og haustið. Kveðjustundin nálgaðist og í lok október snéri Oddný heim aftur. Heim til fjölskyldunnar sem beið hennar á Íslandi. Hún lofaði þó að koma aftur og til staðfestingar um trúfestu sína gaf hún Niels Christian hring sem hún bar, og bað hann um að passa hann fyrir sig í fjarveru sinni. Þannig sýndi hún sínum kærasta að hún myndi snúa aftur innan tíðar.

Næstu mánuðir, á meðan Oddný dvaldist á Íslandi og Niels Christian í Danmörku, voru erfiðir. Dönsk/íslensk kærleiksrík bréf voru send á milli og söknuðurinn leyndi sér ekki. Þann 9. maí, rúmu hálfu ári eftir heimför Oddnýjar, snéri hún til baka. Gleðin var einlæg og mikil, á Kastrup flugvelli í Kaupmannahöfn þann dag. Loksins var biðin á enda. Oddný og Niels Christian voru sameinuð á ný. Oddný leigði sér herbergi á 5. juni plads á Frederiksberg og gekk í áðurnefnda stöðu sína sem saumakona hjá Herlem & Co.

Oddný og Niels Christian, nutu lífsins. Þau ferðuðust mikið saman á mótorhjóli, þar sem fæðingar- og uppvaxtarbær Niels Christian, Vejle var vinsæll áningarstaður. Oddnýju leið vel í og við Vejle, og heillaðist hún fljótt af náttúrunni þar, þar sem henni fannst hún minna á heimahagana á Íslandi.

Á 27 ára afmælisdegi Oddnýjar, þann 10. júlí 1959 hringtrúlofuðu hún og Niels Christian sig og var blásið til veislu á Hotel Munkebjerg í Vejle.

Þann 16. janúar árið 1960, á 24 ára afmælisdegi Niels Christian, giftu þau sig í Stouby kirkju. Vígslan var í sömu kirkju og Niels Christian hafði áður verið skírður og fermdur en brúðkaupsveislan var hjá tengdaforeldrum Oddnýjar, norðan við Vejlefjörð.

60 - Bryllupsbillede - redigereret
Mynd: Oddný & Niels Christian. Brúðkaup 16. janúar 1960.

Heimili og fjölskylda í Værløse

Hin nýgiftu hjón fluttu í litla íbúð við Philips Skovsvej 25, á Frederiksberg.

Fyrsta ár þeirra hjóna var viðburðaríkt og skemmtilegt. Minnistæðast var þó hjólreiðatúrinn um Danmörku, þar sem mótorhjólið var þanið og tjaldið reist upp hér og hvar. Oddný varð þunguð af frumburði þeirra hjóna og festu þau kaup á nýbyggðu einbýlishúsi við Ivarsvej 10 í Værløse. Fyrir árslok, eða þann 1. nóvember, fengu þau fallega húsið sitt afhent, og sunnudaginn 18. desember 1960 fæddist þeim dóttir.

Þann 30. apríl 1961 var dóttirin skírð í Hareskov-kirkju og fékk hún nafnið Rita Pedersen. Sama ár var keyptur hliðarvagn á mótorhjólið svo litla fjölskyldan gæti notið ferðalaganna í sameiningu. Í júlímánuði, sama ár, kom systir Oddnýjar, Elísabet (Elsa), í heimsókn og var það fyrsta heimsókn íslensku fjölskyldunnar af mörgum.

Árið 1963 var mótorhjólinu skipt út fyrir bíl, lítinn Morris 1000, og litla fjölskyldan gerði sig glaða með að fá loks skjól fyrir veðri og vindum í bíltúrum sínum.

Fyrsta ferð fjölskyldunnar til föðurlands Oddnýjar, Íslands, var í júlímánuði árið 1966. Oddný var ákaflega stolt af landinu sínu, sem og stóru fjölskyldunni sinni, og hafði það djúpstæð áhrif á bæði eiginmanninn, Niels Christian, og litlu dótturina, Rita, hversu náin öll þau voru. Svo djúpstæð að engin orð fundust sem lýst gátu upplifun þeirra á endurfundum Oddnýjar og fjölskyldunnar. Fjölmargar heimsóknir til Íslands fylgdu fast á eftir í gegnum árin. Frá árinu 1992 héldu niðjar Ólafs Kristjánssonar og Oddnýjar Sölvadóttur ættarmót víðsvegar um landið, 4.-5. hvert ár. Þar komu iðulega saman yfir 150 fjölskyldumeðlimir stórfjölskyldunnar og gerðu sér glaðar stundir í sveitasælunni og ferska loftinu á Íslandi. Ísland er virkilega fallegt land, með sérstaklega stórbrotna náttúru sem hvergi annars staðar sést. Enda var Oddný, sem áður segir, ákaflega stolt af föðurlandi sínu.

Oddný átti nú von á þeirra öðru barni og þann 24. febrúar 1967 fæddist þeim sonur. Þann 30. apríl 1967 var hann skírður í Hareskov-kirkju og fékk hann nafnið Christian Larsen Pedersen, í höfuðið á föðurafa sínum.

Börnin bjuggu við mikinn kærleik og hlýju hjá elskandi foreldrum sínum, og leið þeim öllum vel á fallega heimilinu þeirra í Værløse. Börnin uxu úr grasi og kláruðu barnaskólann með góðum árangri, þá menntaskólann og urðu þau þau fyrstu í fjölskyldunni til að taka stúdentspróf. Eftir stúdentsprófið hefur ýmislegt dregið á daga þeirra og er óhætt að segja að þau hafi bæði staðið sig með sóma í því sem þau hafa tekið sér fyrir hendur. Systkinin, sem bæði eru búsett í Værløse, eru enn heimakær á bernskuheimili sínu og hafa þau ávallt verið með annan fótinn þar, þar sem þau eru ætíð velkomin.

Árin liðu. Þann 16. janúar árið 1985, einn snjóþungan og kaldan vetrardag, fögnuðu Oddný og Niels Christian silfurbrúðkaupi. Dagurinn byrjaði heima, með morgunsöng og tónlist. Síðar þann dag var haldið til Vejle, þar sem veislu var slegið upp á Hotel Munkebjerg (sama stað og trúlofunarveisla þeirra var haldin). Dagurinn varð þeim minnisstæður fyrir margar sakir. Ófáir heiðruðu hjónin með nærveru sinni og í sameiningu gerðu þau daginn einstakan og ógleymanlegan, fullan af vináttu og kærleik þar sem vinir og ættingjar samglöddust þeim hjónum.

Oddný tók sér frí frá vinnu við fæðingu Christian en í lok árs 1969 hóf hún störf að nýju. Hún ákvað að breyta til og var saumaskapnum skipt út fyrir vélavinnu hjá Pharma Plast, í eigu A. P. Møller. Fyrirtækið var staðsett í Værløse og því ekki langt að fara til og frá vinnu. Pharma Plast framleiddi einnota plast fyrir sjúkrahúsin í Danmörku og var Oddný ávallt iðin við vinnu sína og vel liðin. Eftir 25 ára starf hjá því ágæta fyrirtæki ,fékk Oddný að finna fyrir því hversu dugleg hún var, þar sem samstarfsmenn glöddust með henni og þökkuðu henni fyrir 25 góð ár.

Árið 1995, þá 63 ára, ákvað Oddný að nú væri komið nóg og hætti á vinnumarkaðnum. Hún sótti sér réttindi sín sem ellilífeyrisþegi, með vinnulúnar hendur og slitinn líkama. Oddný hlakkaði til efri áranna, þar sem þeim hjónum fannst hún mega njóta þeirra vel eftir iðjusama starfsævi. Var því ellilífeyrinn kærkominn og vel þeginn. Loksins gat lúin kona fengið ró.

60 - Mor  far motorcykel
Mynd: Oddný & Niels Christian. Sumarið 1959.
60 - Mor  Rita
Mynd: Oddný & Rita. Skírn 30. apríl 1961.

Efri árin

SOddný naut efri áranna með manni sínum og fjölskyldu. Húsinu þeirra í Værløse var ætíð vel við haldið, sem og fallega garðinum sem Niels Christian hafði sinnt af mikilli natni í mörg ár. Þau nutu þess að ferðast, og gilti þá einu hvort það var innanlands í Danmörku, eða út fyrir landssteinana.

Oddný varð amma þann 30. júni 1996, þegar sonardóttir hennar, Sarah, fæddist. Oddný var eftir það ætíð kölluð amma (í stað bedstemor) þegar Christian var í heimsókn með fjölskyldu sinni. Amma var alltaf til staðar fyrir litlu Söruh sína og passaði hana oft þegar sú litla var lasin eða þegar þurfti að sækja hana í skólann. Þá var gott að hafa ömmu til staðar. Sarah elskaði íslensku pönnukökurnar sem amma hennar bakaði svo oft þegar sú yngri var í heimsókn.

Oddný heimsótti Ísland margsinnis eftir að hún hætti að vinna. Minnisstæð er fjölskylduferðin í tilefni sjötugsafmælis hennar. Var þeim vel tekið, þá sem ætíð. Afmælisdagurinn var fallegur og góður, og nýtti fjölskyldan hann til þess að skoða sig um. Fengu þau þá að upplifa margar af fegurstu og mikilfenglegustu náttúruperlum Íslands. Systkini Oddnýjar voru með í för og var mikið hlegið og sungið af íslenskum lögum í rútunni. Íslandsferðin í heild var einstök upplifun og var Oddný ákaflega stolt af að geta loks sýnt barnabarni sínu landið, en Sarah hafði aldrei verið þar áður.

Þann 16. janúar 2010 var gullbrúðkaupi þeirra hjóna fagnað. Aftur var slegið til veislu á Hotel Munkebjerg við Vejle, sem tókst með eindæmum vel. Veislan var þriðja stórveislan sem þau héldu á þeim fallega stað, og jafnframt sú síðasta.

Oddný, sem ávallt hafði verið heilsuhraust, fór skyndilega að kenna sér meins. Það var skömmu eftir 80 ára afmælið hennar, síðsumarið 2012, og litlu síðar fékk hún staðfestingu á því að um hnút í maga væri að ræða. Oddný okkar var komin með krabbamein. Eftir langa og stranga, en velheppnaða lyfjameðferð sem fylgt var eftir með aðgerð í aprílmánuði 2013, hægðist örlítið á ágangi meinsins en 8 mánuðum seinna tók það sig upp að nýju. Nú enn ágengara. Orkan þvarr og heilsan varð verri. Lífsþrótturinn var þó alltaf til staðar, þó vissulega væri baráttan erfið. Þann 25. febrúar var Oddný lögð inn á ríkisspítalann í Kaupmannahöfn (Rigshospitalet i København) og andaðist þar stuttu síðar, þann 7. mars 2014 kl. 21.20. Elsku Oddný okkar fékk hvíldina.

Blessuð sé minning okkar ástkæru Oddnýjar, sem var elskuð af svo ótalmörgum.

60 - Mor guldbryllup
Mynd: Oddný þann 16. janúar 2010. 50 ára brúðkaupsafmæli á Munkebjerg Hotel

Niels Christian, oktober 2014
(þýðing texta: Kristjana Helga, dótturdóttir Sigríðar Helgu Ólafsdóttur, systur Oddnýjar heitinnar)

 

End faq (MÅ IKKE SLETTES)